Ástralir … segja ekki nauðsynlegt að drepa hvali til að rannsaka þá og beina Ástralir spjótum sínum að Japönum sem drepa tæplega 1000 hvali á ári undir yfirskyni vísindaveiða. Hvalveiðifloti Japana er að leggja úr höfn til árlegra hvalveiða á Suðurskautslandinu. Japanar ætla að veiða tæplega þúsund dýr, 935 hrefnur og 50 langreyðar.
A.
1. Southern Man með Neil Young
2. Seasons in the Sun, hér í flutningi Nirvana, með Kurt á trommur, Dave á bassa og Krist á gítar. Upphaflega gefið út á frönsku með Jaques Brel, upphaflega gefið út á ensku með Terry Jacks. Hvort tveggja fékk rétt.
3. Midnight Special, hér í flutningi Credence Clearwater Revival. Upphaflega gefið út af Huddie Ledbetter (Ledbelly).
4. Pick a Bale of Cotton með Huddie Ledbetter.
5. Sweet Home Alabama, hér í flutningi Leningrad Cowboys og kórs Rauða Hersins. Upphaflega gefið út af Lynrd Skynrd.
B.
Hér er um auðugan garð að gresja, en það sem ég var svona helst að leita að er t.d. þetta hér:
1. Sweet Home Alabama er beint svar við lögunum Alabama og Southern Man eftir Neil Young. Bæði “Southern man” og “Mr. Young” koma t.d. fram í textanum.
2. Midnight Special er upphaflega gefið út af Leadbelly. Á þessari Credence plötu voru tvö lög eftir hann.
3. Nirvana hóf glæstan feril sinn sem Credence Clearwater Revival coverhljómsveit, og endaði hann á flutningi Leadbellylagsins Where did you sleep last night (á Unplugged in New York).
4. Leadbelly var fyrsti flytjandi bæði Pick a Bale of Cotton og Midnight special. Þessi lög eru bæði nokkurs konar negrasálmar frá Suðurríkjum Bandaríkjanna, Midnight special þó meiri fangelsissálmur. Upptaka Leadbellys var t.d. gerð í einu slíku.
C. Þemað er um það bil svertingjar í suðurríkjum Bandaríkjanna. Eina lagið sem ekki passar inn í það er Seasons in the Sun, sem er upprunalega franskt og er í þokkabót gefið út á ensku af Kanadamanni.
Var á undanúrslitakvöldi Skrekksins með þrjátíu skrækjandi unglinga í dag og í kvöld. Það er alltaf jafnt hresst. Leikgleðin skilaði sér út í salinn í þetta sinn og mitt fólk komst áfram í úrslit, glæsilegt það!. Það er þá í fjórða skiptið á fimm árum, og þar af þriðja árið í röð, sem verður að teljast bara hreint ágætur árangur hjá Selskælingum! Þá er bara spurningin hvort okkur tekst að næla í þriðju medlíuna á þriðjudaginn í næstu viku…
A. Nefnið heiti lags og flytjanda í hverju dæmi. Tvö stig fyrir hvert lag þar. Fyrir að nefna upphaflegan flytjanda (original recording artist svo þetta sé nákvæmt, það skiptir máli hér) coverlaganna fæst svo eitt stig pr/lag. Hér eru því komin samtals 13 stig í pottinn. En þetta er ekki búið.
B. Finnið a.m.k. fjórar sértækar tengingar milli laganna og/eða flytjendanna innbyrðis. Eitt stig fyrir hverja tengingu.
C. Fjögur laganna tengjast almennt séð í eins konar þema. Eitt lagið passar hins vegar ekki inn í þemað. Hvert þeirra er the odd one out? Rökstyðjið. Tvö stig í boði þar.
Og já, eitt enn: ÞAÐ ER ALGERLEGA BANNAÐ AÐ GÚGLA Í ÞESSARI GETRAUN!!! Mannleg hjálpartæki eru leyfileg, en ekki netið. Góðar stundir.
Það er gamall og góður siður að grínast með eigin ófarir. Ég lýsi því eftir kreppubröndurum í komment. Mér var til dæmis bent á það um daginn að ég gæti notað bestu pikköpplínuna í dag: “Ég er opinber starfsmaður…” Okkur vantar fleiri svona, og helst svolítið svartari, til að hlýja okkur í skammdeginu þegar verður búið að loka fyrir heita vatnið. Við Íslendingar stærum okkur stundum af því að hafa gálgalegri húmor en margir aðrir… hafi einhverntíma verið tækifæri til að sýna það þá er það núna. Ég skal byrja. Hér eru tveir góðir sem ég sá á BBC í dag:
An elderly lady receives an e-mail from the son of a deceased (but wealthy) African general, asking whether he could transfer millions of pounds into her bank account in return for a 20% cut. All the son needs is the sort code and account number. Not realising she is the victim of a Nigerian 419 fraud, she e-mails back the details. A couple of minutes later she receives an e-mail back from the general’s son: ‘Icesave?!’ What is this, some sort of scam?!”
What have Icelandic banks and an Icelandic streaker got in common?
They both have frozen assets
Þá er lokið fyrstu umferð Mússíkmeistarans 2008. Stig skiptust þannig að Guðmann Bragi og Durham mafían tróna á toppnum með tvö stig.
Rétt svör voru eftirfarandi: 1. Tungumálið er ungverska. Lagið er Kinek mondjam el vétkeimet, Eurovisionframlag Ungverja árið 1994, sungið af Frideriku. 2. Tungumálið er enska. Lagið er ekki af verri endanum, sjálft Stairway to Heaven með Led Zeppelin, spilað afturábak. 3. Tungumálið er Afrikaans. Lagið er af verri endanum, mögulega hallærislegasta lag sem ég hef heyrt og séð. Flytjandinn er sem betur fer óþekktur. En hafi lesendur áhuga á yfirmáta hallærlislegum tónlistarmyndböndum við vafasama tónlist á skrýtnum tungumálum þá mæli ég með Serenade vir Sonja á youtube.
Jæja gott fólk. Hér er einföld, létt og löðurmannleg getraun til að hita ykkur upp í byrjun. Þetta er svo skítlétt að ég skammast mín næstum því. Spurningin er einföld. Á hvaða tungumáli er sungið?
Einhverjir hafa lent í veseni með að hlusta á dæmin, málið er að flash playerinn sem ég hef notað hingað til neitar að virka með nýju útgáfunni af Wordpress þannig að þetta verður að vera í tenglum í þetta sinn. Þið smellið semsagt á tengilinn og dánlódið hverju dæmi fyrir sig. Ef einhverjir sjá ennþá lítinn playtakka við tóndæmin þá er þeim bent á að endurhlaða síðuna (F5) því að playtakkinn virkar ekki og á ekki að vera þarna.
Jæja gott fólk. Þá er kominn 1. nóvember og ekki seinna vænna að keyra í gang Mússíkmeistarann 2008. Eins og áður verður ein gáta í viku að jafnaði, á mánudögum til viðmiðunar. Gátan verður opin í 24 tíma frá birtingu og svör skulu sendast inn í komment sem verða svo birt eftir lokun eins og venjulega. Einnig má senda svör í tölvupósti. Hver keppandi má aðeins senda eitt svar við hverri getraun, ekki verður tekið mark á viðbótum eða leiðréttingum við svör eftir að það fyrsta er komið í hús. Tekið verður fram hvort bannað er að gúgla í hvert skipti, það verður stundum leyft og stundum ekki. Minnt er á þá staðreynd að þeir sem svindla á þeirri reglu kaupa sér eilífa Helvítisvist.
Getraunin verður með fjölbreyttari blæ en hingað til og verðlaunin verða ekki af verri endanum, ferðavinningur fyrir tvo innanlands.
Til að fyrirbyggja væl og nöldur frá vinningshöfum fyrri ára skal áréttað að verðlaun eru alltaf afhent á endanum. Endinn er hins vegar ekki kominn ennþá, en hann mun einhverntíma koma.
Fyrsta getraun ársins birtist því hér á besserwissinu næstkomandi mánudag. Góðar stundir.
Nýja Metallica platan heitir Death Magnetic. Frumlegt. Ég hef ekki hlustað á hana alla, aðeins heyrt eitt lag í útvarpinu. Það var eitt vont lag, sem samt var auðvitað lofað í hastert sem eitt besta framlag Metallicu til tónlistarmenningar heimsins af útvarpsmanni sem eflaust fær borgað fyrir að sitja og spila fyrirfram ákveðna playlistann sem er í tölvunni þegar hann mætir í vinnuna.
Metallica var einu sinni góð hljómsveit. Hún er það ekki lengur. Metallica er svona eins og Bubbi Morthens. Bubbi var líka einu sinni góður mússíkant. Hann er það ekki lengur. Eitt hefur Bubbi þó framyfir Metallicu, hann hefur þróast sem tónlistarmaður, siglt á ný mið og verið óhræddur við að prófa nýja hluti. Metallica er ennþá að kreista misvondar varíasjónir af svarta albúminu út úr gíturunum í þeirri von að þeir sem fíluðu industrymetal árið 1988 fíli ennþá endustrymetal. Þeir virðast ekki hafa gert sér grein fyrir því að Nirvana drap iðnaðarmetalinn, glamúrmetalinn og bara metal almennt. Nu-metal sveiflan var svona retrópæling sem virkaði, harðari, ferskari, meira blóð og meira rokk og sagði industrymetalnum hreinlega stríð á hendur. Svo varð heimsbyggðin leið á Korn líka. Þannig að ég get ekki tekið því að Metallica skuli í dag bjóða mér upp á útjaskaðan iðnaðarmetal, sem er verri að gæðum en iðnaðarmetallinn sem þeir buðu mér upp á fyrir tuttugu árum síðan, á annan hátt en sem persónulega móðgun.
Og þá er nafngiftin jafnvel frátalin. Death Magnetic. Nafnið á þessari plötu er, leyfi ég mér að segja, arfalélegasta plötunafn síðustu tíu ára, ef mögulega er undanskilin platan Re-Load með sömu hljómsveit. Sú plata kom einmitt út á eftir plötunni Load, sem í senn útskýrir þá nafngift og veldur ælutilfinningu í sömu andrá.
Metallica er dauð fyrir mér. Dauð segi ég. Þetta var síðasti naglinn í kistuna.
Morfís er byrjað aftur. Ég var í dómgæslu í gær á Kvennó - FÁ og það var bara ágætlega gaman. Umræðuefnið var reyndar með þeim klassískari (og þar með þreyttustu) sem ég hef setið undir en þó hjálpaði að það var töluvert um skemmtilegar nálganir og nýjar pælingar sem vert var að hlusta á. Kvennó sigraði með nokkrum yfirburðum, einhverjum rúmum 300 stigum. Ég fékk það verkefni hjá samdómurum mínum að vera leiðinlegi oddadómarinn með löngu og leiðinlegu ræðuna, sem ég reyni reyndar að gera ekki annars. Ég veit ekki hvað ég talaði lengi um mistök í framkvæmd, refsistig, prósentuhlutföll stiga, pirring dómara yfir ræðumönnum sem ekki drulla sér í pontu þegar kallað er á þá, nýjar reglur í morfís, tölfræðileg ólíkindi jafnteflisdóma í morfís og svo framvegis, allt mjög þörf og merkileg atriði sem rétt er að oddadómari tjái sig um áður en úrslit eru tilkynnt. Ef einhver var að telja mínútur væri gaman að fá þær hér í komment.
Ég er hins vegar búinn að ákveða að næst þegar ég verð oddadómari ætla ég að reyna að slá íslandsmetið í stystu oddadómararæðu sem haldin hefur verið. Ég held að Sólmundur Hólm eigi það met síðan á MR-VÍ í átta liða úrslitum í fyrra, um tvær mínútur eða svo. Hafi einhver aðrar upplýsingar þá má viðkomandi færa rök fyrir þeim í kommentum. Ég stefni alla vega á að komast vel undir mínútuna.
Datt niður á skemmtilega síðu með myndrænum úrslitum úr öllum forsetakosningum í Bandaríkjunum frá upphafi. Þar má til dæmis sjá að Strom Thurmond, elsti þingmaðurinn sem enn situr í öldungadeildinni, bauð sig fram sem forseta gegn Harry S. Truman á sínum tíma! Kemur líka skemmtilega á óvart að Strom, sem seint verður talinn frjálslyndur með afbrigðum, er skráður í framboð sem ‘Dixiecrat‘, hvað sem það þú þýðir.
Þessa viku er ég að vinna að verkefninu indefence.is. Verkefnið snýst um að fá sem flestar undirskriftir gegn notkun Breta á hryðjuverkalögum gegn Íslendingum. Undirskriftirnar verða afhentar breskum stjónvöldum um mánaðarmótin og þegar þetta er skrifað hafa tæplega 58.000 manns skrifað undir áskorunina.
Ég hvet alla til að kynna sér þetta verkefni, lesa áskorunina og skrifa sig undir hana ef þeir eru sammála því sem þar kemur fram. Þeim mun fleiri sem skrifa undir, þeim mun meiri áhrif mun þetta mögulega hafa. indefence.is er ópólitískt verkefni sem er ekki tengt þeim mótmælumsem farið hafa fram með misjöfnum hætti undanfarna daga. Það snýst ekki um pólitískar persónur eða stefnumál, heldur hagsmuni og orðspor íslensku þjóðarinnar erlendis.
Nú þegar hefur verkefnið vakið gríðarlega athygli erlendis og umfjöllun um það hefur birst á forsíðum margra helstu prent og vefmiðla í bandaríkjunum, Bretlandi, á norðurlöndunum o.fl. Má þar nefna BBC, Financial Times, The Independent, Daily Telegraph, Times og Daily Mail. Greinarnar má lesa hér, á vefsíðu indefence.is
Þessa viku verður starfrækt upplýsingamiðstöð á jarðhæð gömlu Moggahallarinnar við Ingólfsorg þar sem gestir geta aflað sér upplýsinga um verkefnið, hringt í vini og kunningja innanlands og erlendis og vakið athygli á verkefninu, sent tölvupóst eða auglýst á Facebook, nú eða bara fengið sér kaffisopa í kuldanum. Fótgönguliðar verða einnig á ferðinni í miðbænum, í Kringlunni og í Smáralindinni til að kynna verkefnið.
Á föstudagseftirmiðdaginn er svo stefnt að því að slá botninn í starfssemi upplýsingamiðstöðvarinnar með Krepputónleikum á Ingólfstorgi.